FARA Á OFUR.IS

Ofur hljóðkerfi og zusushii kynna
Óli Ofur á Nasa 14. janúar

Á kaldri vetrarnótt þann 11. janúar 2002 steig plötusnúðurinn Óli Ofur á svið í fyrsta sinn. Hann var staddur á Ofurkvöldi á Akranesi og steig fyrstur á stokk það kvöldið. Hann spilaði allar plöturnar sínar áí 35 mínútum, jafnvel báðar hliðar á sumum.

Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, en í dag þykir hann einn virtasti danstónlistarplötusnúður landsins. Að leið sinni þangað hafa komið frá honum ótal mix(tape) sem mörg hver hafa hreyft við landsmönnum og jafnvel breytt tónlistarsmekk áheyrenda. Einnig er Óli Ofur landsþekktur fyrir að setja upp bestu partí sem sögur fara af og oftar en ekki hefur hann málað bæi og borgir rauðar, jafnvel tún. Óla á vart að þurfa að kynna, hann hefur margoft sýnt hvers hann er megnugur með tvo spilara, mixer og dansgólf fyrir framan sig. Dansgólfin hafa verið af ýmsu tagi, má þar nefna Þjóðhátíð í Eyjum, útireif, Broadway, Nasa ásamt flestum dansklúbbum borgarinnar undanfarin 10 ár. Hann er því vissulega einn aðal máttarstólpinn þegar kemur að því að halda fána rafrænnar danstónlistar á lofti.

Þann 14. janúar næstkomandi verður 10 ára farsælum ferli fagnað með RISApartí á Nasa þar sem Óli mun spila sérstakt 5 klukkutíma afmælissett og rifja meðal annars mörg af bestu lögum ferils síns. Þeir sem þekkja til vita að hér verður ekkert til sparað til að gera sem best við dansinn. Þetta er partí sem þú vilt ekki missa af.

Forsalan er í Mohawks Kringlunni, og í Maníu á Laugarvegi. Forsöluverð er 1.000 kr. - við hurð 1.500 kr.

LIVE @ BARBARA 21. DES '11


LIVE @ REYKVEEK 17. DES '11


VEEK001